|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 33071
|
15.06.2009 21:06:48 / elva_69
Sælt veri fólkið. ákvað að skella hérna inn smá rugli þar sem ég er ein heima og ekkert spennandi í imbanum. Allavega, þá er ég byrjuð að vinna, er yfir meinuðu liði fyrir hádegi svo eftir hádegi er ég að vinna með Birki,Ragnari,Gumma og Adda... eintóm hamingja=) þetta er alveg ágæt fínt að hlusta á bullið í þessu liði, ég er bara nokkuð eðlileg þegar ég er kringum þetta lið hehe, en samt efitr 13 júlí verð ég á leikskólanum her þannig ég hætti þá með stráknum og vinnan fyrir hádegi búin yfir sumarið, Svo vil e´g nú lýsa ánægju minni og stolti að Hrafnkell Freysgoði is back  og strákarnir eru að spila fótbolta í launaflsbikaranum, og auðvita skellti maður sér á djúpavog, ég og Eyþór tókum rómantískan rúnt þarna yfir leikurinn endaði 2-2 mjög sátt þar sem þetta er svona blandað af congobúum,breiðdælingum og stöddurum sumir vissu ekkert hvað hinir í liðinu hétu og eitthvað haha. en svona er þetta, þetta kemur allt, heyrðu svo keypti kjellan sér bíl um daginn, Toyota Avensis 98 árgerð silfurgrár varð fyrir valinu, mjög sátt með bíllinn sjálfskiptur og ekki keyrður mikið og svona. en sumrið hjá mér verður mjög gott, vinna og vinna og vinna og stunda böll og bari og vinna og vinna.. ljúft.. jú kannski nokkur ættarmót þarna inní og FRANSKIR DAGAR takk fyrir.. hehe svo er ég að fara á Norðfjörð í skóla í haust, það verður nú ljúft að vera með ástinni minni þarna;* =) kannski fái maður smá metnað í þetta, og gerist bara njölli.. hvernig væri það??? heyrðu svo er bara 17 júní framundan.. ég neita að fara á ball daginn fyrir 17 útaf því sem gerðist í fyrra.! endaði alveg í kolvitlausu húsi þannig ´seð hahahah lalalal en jæja þarf nú að hætta þessu bulli í bili Selja mín er að koma kem með meira síðar.. Elva Bára
»
25.05.2009 14:11:55 / elva_69
Já daginn hér...
jæja góðan daginn..
það er sumt alveg hreint dásamlegt, ég er búin að vera í fríi síðan seinasta miðvikudag og er alveg að deyja mér leiðist svo.. ég byrja ekki að vinna fyrr en 1 júní, og ég get ekki beðið eftir því að stjórna þessum elskulegu unglingum sem eru á gelgjunni á háu stigi ég held að ég verði alveg stórgóð í að stjórna þeim hehehe
En ég er búin að vera nokkuð dugleg að vakna snemma eða þannig, vaknaði til 9 á föstudaginn eina skiptið sem ég hef vaknað snemma og kíkti í fjárhúsin og knúsaði lömbin=) ég heyrði líka fyndnasta orð í heimi þar, Guðni var að láta lamb sleikja á sér andlitið og pabbi hans sagði við hann ekki láta hann sjúga á þér nefið og Guðni sagði hvað kemur þá, þá sagði pabbi hans nú mjólk... Guðni: jáááá kemur þá hormjólk:'D þetta var alveg æðislegt orð hjá honum. hehehe gullkorn dagsins alveg hreint,=) svo tel ég mig vera orðin morðingja, allavega svona þannig séð, ég selja og jay mamma hennar kíktum aðeins á reyðarfjörð á föstudaginn og við selja töluðum svo mikið að við sáum hvorugar kollu sem var á veginum fyrr en það var orðið seint þannig við keyrðum nú óvart á hana.. svo litum við í baksýnisspegillinn þá var anskotans fulginn lifandi enn reyndi eiithvað að lyfta hausnum en gat það ekki þannig þar fór einn fugl hann var dauður þegar við komum til baka.. en ég kom nú með hugmyndina um að setja hann á grillið, því við grilluðum um kveldið það avr nú ekki tekið vel í það hehe.. það var slatti af fólki hjá gumma á föstudagskveldið mikið sungið og dansað og spilað og drukkið..jááá..=)
laugardagskveldið kíktum við selja á Egs með adda... en þar sem það var ekki neitt stuð þá fórum við á kósí á reyðarfirði þar var stuð nóg af fólki og fleira vorum þar í smástund svo á leiðinni heim keyrði addi á 2 FUGLA... þannig ég og selja lenntum í því 3 fuglar á 2 dögum.. gerist ekki betra en það.
en ætli þessi vika fari ekki í það hjá mér að taka til og baka fyrir 70 ára afmælið hjá ömmu gömlu á laugardaginn það verður sko sungið og svona, mér heyrist á öllu að ég eigi að gaula eitthvað þarna! það fer samt bara eftir stuði á minni hehe svo koma Kalli og Benni á miðvikudaginn, þá verður farið að skreyta og eitthvað salinn á hótel staðarborg=) svo kemur Kata og Fannar líka, get ekki beðið eftir að fá að Knúsa fannar minn.. ég ætla rétt að vona að hann verði duglegur að láta Dísu og Ömmu hlaupa á eftir sér eins og mófó=) þá er hann nefnilega ekkert ólíkur mér.. ég var nú hreint ekki alveg stillt barn, en er orðin það núna=) algjör engill
en ætla að setja hérna nokkrar myndir af sætu dráttarvélinni okkar, hún er samt ekki alveg tilbúin, ein legan var ónýtt og ekki til , þannig við þurfum að biða eeftir nýrri, =)
fallega fallega
jájá yndi
ég og pabbi fórum að ná okkur í hluti sem voru ónýtir í okkar vél en í lagi á þessari vél.. þetta málaði ég meðal annas
þetta er fossinn rétt hjá Húsó mjög fallegur
Anna rok, hehehe
Guðný Klara dugleg
en jæja orðið gott í dag...
sælt verið fólkið

Elva Bára Indriðadóttir
»
16.05.2009 18:54:36 / elva_69
já gott kvöld fólk, mín hefur nú ekki staðið sig nógu vel í þessu enda haft nóg að gera að undanförnu...
ég er búin að taka þátt í söngkeppni Framhaldskólana gekk rosa vel og segjir fólk að þetta hafi verið án efa besta atriði frá Húsó forever sem er mjög gott.. ég gerði líka góða hluti þarna á akureyri þíðir ekki annað svo varð ég nú 18 ára í gær.. loksins orðin sjálfráða og núna þarf pabbi ekki að skrifa undir ef ég skyldi nú ákveða að gifta mig hehehe lol var nú að undirbúa vorsýninguna í húsó í allan gærdag svo fór ég í egs til Adda og Gumma og fór í sturtu og drakk og endaði alveg mjög ógáfuleg og fór í sumarbústaðapartý hjá stelpunum mínum.. það var mjög fínt. endaði svo í rúminu hjá adda og svaf þar hehe..
Svo gerðist Hræðilegt slys í morgun Ungur vinur dó í morgun í Hræðilegu Bílslysi í botninum á Fáskrúðsfirði, ég votta allri hans fjölskyldu og vinum innilegrar samúðarkveðjur
þetta er ekki alveg búin að vera besti dagur, svo fékk maður aðrar hræðilegar fréttir um vinkonu mína hér í Húsó...
en svo er eurovision í kvöld, vonandi vinnur albania eða noregur.. en mér finnst bara gaurinn svo hot annað ekki.. svo er vorsýning í húsó á morgun svo á miðvikudaginn verð ég búin hér og get ekki beðið eftir að komst heim..
ég og pabbi erum búin að vera að mála og gera gamlan úrsús flottan heima.. hann er orðin stórglæsilegur.. svo er ég komin með vinnu í sumar yfir unglingavinnunni og öruglega á leikskólanum heima líka.. vonandi bara sem mest að gera fyrir mig!
en jæja euro að byrja best að koma sér fyrir framan sjónvarpið og tala við kristján minn hann er sálfræðingurinn minn í dag allavega Blessi
»
12.04.2009 13:10:00 / elva_69
Já Góðan dag og gleðilega páska! ég ákvað að skella einu páskabloggi hérna inn þar sem ég er svo innilega "fersk" eftir kvöldið.. en allavega dagurinn í gær byrjaði mjög vel, ég vakinn af pabba, týpisk hann! og mér sagt að drattast á lappir því við værum að fara á reyðarfjörð! maður drattaðist þanngað keypti sér skó og eitthvað til að hafa í matinn í dag, svo var farið á stöddan í smáheimsókn svo drullað sér alla leið heim, og svona dúllað sér við það að gera sig sæta, svo í gærkveldi var farið á fáskrúðsfjörð, og farið þar í STÓRGÓÐA afmælisveislu hjá honum Jón Grétari byko frænda  þetta var gjörsamlega ein mesta snild í heimi, það byrjaði þannig að systir pabba var að spilla mér telmu og gugga og kom reglulega með bjór til okkar haha, svo lenti ég í korters fræðslu um hvað Land rover væru bestir, Guðbjörn bróðir pabba á land rover sem er hvað 79 árgerð og ég tjáði mig um ryð sem ég sá, og þá fékk mín bara fræðsluna haha.. svo nátturulega komu frábærar settningar hjá þessu fólki en gullkornið var þegar maggi var að tala við helga í samskip og sagði við hann: sko það er nú ekki hætt að búa á egs og helgi eitthvað jújú en eki á reyðarfirði þá kom maggi: sko reyðfirðingar fæddust skemmdir, hvað hafiði héraðbúar til að afsaka ykkur við:'D þetta var nú það gáfulegasta sem ég hef heyrt leeengi.. svo var maður komin heim eitthvað seint og síðanmeir og eitthvað hringdt í mig úr héraðinu til að segja mér eitthvað ´fáranlegt dæmi sem mér gæti ekki verið meira sama um og þetta sem ég frétti sýnir bara hvað sumt fólk er meinað í hausnum.. haha en það er allt frábært að frétta af mér, 6 dagar í söngvakeppni framhaldskólana, og ég er kannski orðin smá stress að koma fram fyrir framan helliiiinnng af fólki, hehhe svo tók ég þá ákvöðrun að ég ætla að skella mér á nobbaran í haust, halda áfram að gerast nobbaramella  hahaha Steinunn er nátturulega búin að koma þessu orði í hausinn á mér, en síðasta vika er búin að vera svaka fín, mamma kom heim frá lækninum að sunnan á miðvikudaginn og við sóttum hana og eitthvað, hún fékk gat í augað, alveg merkilegt að það sé hætt að fá gat í augað.. svo á þriðjudaginn minnir mig fór ég á fásk og fór til Hildar Ránar og við kíktum á rúnt  svo erum við Silvía mín búin að bauka ýmist mjög fínt að fá þann fávita austur, hún er nú svo skemmtilega meinuð í hausnum eins og margir núna hjá mér, við fórum í póker og trivial nokkur á föstudaginn, tók þar STÓRGÓÐ myndbönd af Arnóri frekar ölvuðum að reyna að lesa eitthvað, myndbandið á eftir að koma á facebookið ´fljótlega öruglega svo þarf maður að drattast í messu á morgun og 3 fermingar, spurning hvort maður fari í þær allar, nenni eiginlega bara í eina og það er til að gera grín af þeim ættingum sem voru að missa sig í áfenginu! ahah svo er rúsinurassinn minn að spá í að koma í kvöld og gista.. eins gott að það verði svo! nenni engu anskotans rugli hahah;D en læt þetta gott í bili sleppi því að setja myndir síðan í gærkvöldi inn þær eru ekkert svakalega yndislegar, hahah Elva Bára
»
01.04.2009 14:59:48 / elva_69
»
25.03.2009 13:40:22 / elva_69
Góðan daginn!! ég ætlaði að byrja á þessari færslu á því að tjá um karlmenn.!!!!!!!!! Sumir karlmenn eru svo fáránlegir.. sumir hugsa ekki.. eins og það að senda manni sms á hverjum degi og eitthvað gefa manni alveg magnaðar vonir og eitthvað... heyrðu svo hittir maður maneskjuna og kannski kyssir hann eða eitthvað.. svo eftir það þá hunsar hún mann... svarar manni kannski einu sinni í sms!!!!!!  svo veit maður ekki neitt hvort maður hefur gert aðilanum eitthvað eða ekki.... alveg ótrúlegt og maðurinn þorir öruglega ekki að segja neitt eða neitt... svo að aðlinn talar um hvað maður sé góð stelpa og eigi ekki skilið að láta særa sig og eitthvað... HVAÐ ER MANESKJAN ANNAÐ AÐ GERA EN AÐ SÆRA MANN MEÐ ÞVÍ AÐ HUNSA MANN????? að vera hunsaður er ekki skemmtilegt .. ég varð bara að koma þessu frá mér.. það rýkur úr hausnum á mér reiðin yfir þessu.. Eeeen allavega.., þá eer alveg að koma páskafrí frekar sátt með það  . ætli maður reyni ekki að kíkja í jeppaferð með dagbjörtu,birki,davið arnari og eitthvað allavega var einhver hugmynd um það veit ekket hvað verður úr því svo verður eitt stykki stórafmæli sem maður fer í  og nokkrar fermingar  en núna er maður bara á fullu í skólanum að klára það sem klára þarf.. á eftir að gera kjól og peysu.. og þá verð ég búin í saumum... kjólinn verður allsvakalegur  og verður notað í stóraviðburðinn minn á þessu ári brúðkaupið hjá ástinni minni;* í endaðan ágúst á þingvöllum.. en eitt er nú ekki gott.. hún heiðrún sara sem bað mig um að koma í húsó er hætt í skólanum og er semsagt búin að skilja með eftir hérna lengst útírassgati ein..  ehehehe en ég lifi nú af hef Ingva grasfélaga minn hérna í næsta herbergi.. hef hann til að verða klikkuð við  en já allavega.. þá fór ég heim seinustu helgi.. var send í það að pakka öllu dótinu mínu niður.. ég var farin að halda að það ætti að henda mér út.. en það var ekki svo gott  mamma og pabbi voru bara að fara að mála herbergið mitt enda komið tími á það  heheh en já svo er ég komin með nýja tölvu mér til mikillar ánægju.. talvan er nýji kærastinn minn.. tek hana framm fyrir allt.. eða svona nánast allt.. hehe.. en já ætla að hafa þetta gott í dag... ætla að fara að klára að sauma... Elva Bára
»
05.03.2009 14:23:47 / elva_69
Jæja Krakkar mínir..
tíminn er nú aðeins og fljótur að liða.. 8 vikan í skólanum er að klárast núna, og þá eru bara 7 vikur eftir og þá tekur sumarið við
en jæja margt og mikið búið að ské hjá mér, ég lá í pest seinustu viku, fór heim á Þriðjudeginum. fannst ekki alveg ganga að liggja upp í rúmi hérna á Hallormstað með hita, þannig gamli karlinn sótti mig. fór reyndar uppeftir aftur á föstudeginum til að vinna. kúrði hjá Benný og Davið þá helgi það var bara mjög fínt, kíkti í heita pottinn á föstudagskveld uppí Skjöldólfstaði, þar var slatti af liði og mikið rætt endaði síðan í Teigaseli hjá Birki í kaffi og kökur eftir pottinn Er búin að kíkja til Læknis og lenti á pólskum manni, hefði mátt skilja aðeins betur hvað hann sagði hehe.. Svo er alveg ótrúlegt með eitt, það er svo mikið rugl sem ég get látið plata mig í.. haha það er alveg magnað allavega þá hvet ég fólk til að horfa á söngvakeppni framhaldskólana 4 apríl næstkomandi þá veit það hvað ég meina hahahhahah
en já barkinn var haldin 21 feb, það var mjög gaman á honum, var ekki alveg sátt með 2 efstu lögin en það er bara ég, svo var smá hittingur hjá Benný minni mjög gaman, svo var skellt sér á ball, var ekki að fíla lögin sem þessi hjómsveit tók, ekki alveg þessi balllög.. þótt ég fíli þessar hljómsveitir sem þeir voru að taka lög eftir, var þetta samt ekki að meika það, hehe mætti samt geðveikt hress í vinnu daginn eftir=) og svo um kveldið kíkti ég til Fjólu í smá hitting þær voru nokkrar sem skelltu sér á Vonar Ball, ég kíkti bara smá á rúntinn.. á fallega bíllinn hans Margeirs frænda, frekjan ég fékk að prófa hann haha helviti sátt með það gott að vera frekja stundum og ég og Margeir frændi gátum alveg bullað slatta hehe ég skreyti líka bíllinn hans alveg magnað vel að innan og þegar ég talaði við hann um daginn var hann ekki búin að taka það úr og ætlaði að gera þetta að nýjustu tísku á reyðarfirði og allir yrðu komnir með svona I really hope not! hahah
svo var þorrablót hérna í Húsó um daginn gekk alveg mjög vel einum of góður matur, ég afrekaði það að gera svínasultu og jafning og fleira, en ég ákvað það eftir þetta að gerast hausadýravinur, ég alveg virkilega kúgaðist á að skera tunguna og taka augun út og svona, ég sagði líka við mömmu að ég mundi nú ekki geta mikið verið bóndi fyrst ég kúgaðist á þessu ehheh! held að gamla konan hafi verið svolitið samála mér hehe
Svo núna um helgina þarf ég að dúsa hérna í Húsó og elda handa liðinu hún verður held rosa róleg hjá mér semsagt, ætla bara að prjóna og klára ýmsa hluti sem ég á eftir að gera.
en jæja þar til næst
Elva Bára
 (við stöllur Ég,Benný og Fjóla ) =)
»
08.02.2009 15:48:32 / elva_69
OOOOJÁ mín skellti sér á Þorrablót hérna heima í gær og sjæsinn það var gaman  Borðhaldið mjög gott þar sem var mikið gert grín af Adda,Jóa,Styrmi,Ísaki og Arnóri:'D hahah einum of gott  svo eftir borðhald fórum við úteftir til arnórs aðeins svo kíktum við til gumma í smá teiti svo var skellt sér á ball og dansað eins og mófó og fleira svona.. ég og Gummi áttum víst mjög Rómantískan dans beint fyrir framan mömmu til að gera hana vandræðalega... kerlingin hló braa mjög mikið af okkur.. og fleira rugl.. helling af fólki og maður lét sig ekki vanta að dansa við gömlu karlanna  hhahahaha  en já ég er bara drullufeginn að hafa farið á þetta blót og það hafi komið þessar reglur í Brúarás  hehehe.. ég drullaðist nú líka í klippingu á stöðvarfjörð í gær.. á undan því fórum við Arnór og Ásta út á meleri og ég skeit næstum því á mig þegar arnór byrjaði að leika sér á svellinu svo fór Ássta að gera þetta líka en hún þori ekki það miklu svo var ég sett undir stýri.,.. segjum bara að ég fékk NOKKUÐ mikla útrás haha  en drullugaman var þetta en já svo fer maður að drulla se´r upp í egs aftur.. ætla að kíkja til Bennýar og Davíðs  rugla eitthvað í þeim og fá slúður  hehe en jæja ætla að drulla einhverjum myndum inn  og fara að gera einhvern fjanda.. þar til næst Fröken Elva Bára
»
04.02.2009 21:09:33 / elva_69
Jæja góða kvöldið!  jæja hmm blogg já fínt.. jæja langt síðan seinast hmmm haa... talandi um leti eða? en allavega.. lifið mitt er mjög gott hérna í húsó.. ég og Heiðrún Sara erum alveg magnaðar saman í herbergi.. ooog takið eftir við erum ekkert´búnar að rífast..  ég og Heiðrún erum samt hörkuduglegar að koma í Egs og fá gesti til okkar  alltaf gaman að fá fólk hingað.. fór heim þar seinustu helgi.., eldaði alveg rosa góðan mat og bauð bróðir mömmu og dísu og birki þóri í mat..  er orðin alveg bara eins og gló magnaða í eldhúsinu hehe en svo koma saumarnir ekki alveg eins sterkir inn hjá mér hehe er í prjón og hekl og á að vera búin með 2 barnavetlinga en ég er nú ekki byrjuð á þeim.. ég á nógu erfit að vera með 2 prjóna hvað þá 5  hehe Svo er ég líka í listmunagerð og þar er ég byrjuð á ostaskerara og skaftið er úr hreindýrshorni mjög flott  svo var ég í umsjón seinustu helgi, svaf og eldaði eina sem ég gerði alla helgina, svo núna um helgina er ég að fara á Þorrablótið heima fer ekki á Þorrablótið í Brúarási komnar nýjar reglur engum hleypt inn yngri en 18.. og það eru bara 3 mánuðir í mitt 18 ára afmæli hehe en ég lifi þetta af fínt að fara heima get alveg eins skemmt mér þar eins og hér.. svo verður það bara unnið næstu 3 helgar, er að fara að taka aukavakt og eitthvað, nóg af pening sko en það er bara snjór hérna og mig langar svo óendalega mikið á snjósleða... vill einhver fara að bjóða mér á sleða.. yrði alveg með bros á vör ef það yrði gert  hehe en síðan biður maður spenntur eftir seinustu helginni í feb þá er maður í löngu fríi verð samt að fá einhvern til að vinna fyrir mig þá, ætla helst að fá að vera heima hjá mér prjónandi eins og gömul kona  haha en já maður ætti kannski að fara að pilla sig í sturtu og taka kannski eins og eitt stykki af partý og co með gellunum hérna hehe en jæja ég blogga eftir blót og set myndir síðan inná blóti..! farvel.. Elva Bára Indriðadóttir
»
12.01.2009 16:02:04 / elva_69
Dag dag daginn...
þar sem ég er virkilega búin snemma í skólanum í dag, ákvað ég nú að skella einu smá litlu bloggi hérna inn.
Ég er allavega að fíla mig í botn hérna í FAGRA Fljótsdalnum, mér líkar bara mjög vel hérna í skólanum, þessa vikuna verð ég að sauma, eða í dag var ég að læra á saumavél og svona gera prufur og eitthvað og ég slasaði mig ekki neett.. ótrúlegt bara, ég meina.. ég að vinna mekeð með skæri og nálar er held ég bara stórhættulegt hehe, en svo í kvöld þarf ég að klára heimavinnu í saumi, þrífa saumaherbergið fékk akkurat fyrstu vikuna í það frrábært svo þarf ég að þrífa alla stíga og ganga hérna, það er víst skylda þegar maður er í umsjón með þessu, en ég er nú vön að þrífa þannig ég dey ekki.. hehe
Helgin var samt voða nice hjá mér fór heim á föstudaginn, slakaði bara á heima svaf og skannaði myndir síðan maður var litil og sætur og setti á facebook.. svo í gær fórum við Birkir Þ og Ragnar bara snemma upp í héraðið og ég var bara uppí herbergi hjá þeim og kíkti svo á eiginkonuna mína og spjallaði við hana.. svo skutlaði Óli okkur Heiðrúnu,unni og Guðnýju í húsó...
Svo fer að koma að þorrablótunum, ég fer allavega á 2 kannski 3.. það er þorrablót hérna í skolanum ekki stórt bara svona smá, svo er nátturulega þorrablót í Brúarási maður lætur sig ekki vanta þangað svo er spurning með Þorrablótið í Breiðdalnum, það er sko daginn eftir þorrablótiðí brúarási. þetta fer eftir ýmsu sko.. hehe ég verð nátturulega að vinna í kaufó aðra hvora helgi.. fínt að fá smá svona vasapening en jæja ætla að fara að klára heimavinnuna og verkefnin svo slaka á Adios Elva Bára Húsódama
»
08.01.2009 19:47:53 / elva_69
jæja haldiði ekki að kjellan sé í Húsó..  byrjaði þar á þriðjudaginn.. og er með henni Heiðrúnu Söru minni í herbergi.. við erum Í Helgafelli  alveg svaðalega kúl herbergi finnst ekki flottara á landinu.! iiiiiiihhhh en já þetta er nú alveg magnað stuð bara.. mjög fínt og klikkað lið þarna og hvað 6 eða 7 strákar pæliði í því.. bjóst nú ekki við svona mörgum líka þegar ég og Heiðrún mætum á svæðið þá voru bara strákar sem tóku á móti okkur,ég var farin að hugsa um að labba út aftur... heheh neij grín.. en já ég fór uppí egs á laugardaginn samt ég og Arna og ætluðum að fara til Jóa og eitthvað í partý en það var bara virkilega ÖMULEGA leiðinlegt þannig ég kikti bara í heimsókn til Bennýar og Davíðs eða svona smá fór samt fljótlega inn í næsta herbergi að tala og lemja Ævar.. en allavega svo fór maður heim á sunnudeginum.. og eitthvað samt fór ég aftur upp í egs á mánudeginum mamma og pabbi voru að fara á Akureyri pabbi var að fara á spitalan... svo gisti ég bara hjá Benný og Davið við og fjóla fórum á reyðarfjörð í flippi og eitthvað og ég verslaði allt fyrir húsó.. neeeett  en já svo er ég bara á egs núna  matti var svo góður að ná í okkur Heiðrúnu okkur langaði svo að kíkja er bara hjá ástkæri eiginkonu minni Steinunni núna  ohhh hún er svo mikið æði pæði sæði  hahaha en ég skrifa eitthvað meira og betra næst þegar anskotans tölvutíkinn er komin úr viðgerð, kannski fæ ég bara ða stela tölvunni hans pabba Adios SUCKERS
»
02.01.2009 20:10:23 / elva_69
  VARÐ AÐ SÝNA YKKUR HÚN SILVÍA RUT RÉÐST Á ANDLITIÐ Á MÉR MEÐ AUGNSKUGGA HAHAH...
»
23.12.2008 16:09:35 / elva_69
Góðan dag mitt kæra fólk  Eins og allir vita þá er Þorláksmessa gengin í garð og margir hverjir eru búnir eða eru að fara að borða skötu, á þessu heimili er ekki byrjað að sjóða skötuna enn í kvöld þá mæta hér 5 af systkinum pabba hin búa fyrir sunnan svo er nátturulega Stebba frænka en hún er á sambyli, þetta er ekki fáar maneskjur, þetta eru 31 kjaftar með heimilisfólki! helviti næs bara  þetta er orðin mjög mikil siður hjá mér! það væri ekki jól nema að finna þessi viðurstyggilegu lykt á þorláksmessu  haha en nátturulega fyrir matvont fólk sem borða ekki skötu er saltfiskur í boði  ég hef alveg borðað skötu gerði það alltaf hjá ömmu á yngri árum en ég fæ mér oftast saltfisk núna  hehe Ég, Kalli og Benni kíktum á Reyðarfjörð í dag, ég átti víst að fara að kaupa mér jólaföt, þau kostuðu u.þ.b. 30 ég er enn í sjokki.. ég ætla ekki að kaupa mér föt á næstunni hehe! það er búið að rigna svo mikið hér að mesti snjórinn er farinn, ég er nú ekki sátt með það.. ég hata auð jól, svo vorum við Kalli send í að skreyta í gær inni og sendum Benna út að setja seríu á sleðann minn og koma stöfunum á hús.  ég og Kalli erum mjög ólikt sistkyni þannig það var frekar mikið rifist um skrautið inní húsinu.. ég held mig í gömlu siðina það sem ég er vön, svo kemur bróðir minn svakalega tískufríkið og vill eitthvað annað! mjög hreystandi að hlusta á okkur 2! hahahaha.. jólin á morgun.. fer ekki fyrir mikið fyrir jólastemmaranum í mér, Pabbi fer að vinna rúmlega 6 annað kvöld SEM ER NÁTTURULEGA EKKI Í LAGI.. ég er hreint ekki sátt með þetta svo verður hann líka að vinna um áramótin. þá verðum við gamla konan bara einar allir farnir eitthvað annað! svo er nátturulega planið að fara á egs á 2 í jólnum, verð held ég driver samt fínt að kíkja uppeftir kíkja á liðið mitt  en jæja ég ákvað nú að skella einu bloggi hérna inn og segji þá bara Gleðileg Jól elskurnar mínar og hafiði það agalegt gott um jólinn, borðiði eins mikið og þið getið og njótið þess að vera með fjölskyldum ykkar ;*
kv Elva Bára Indriðadóttir
»
21.12.2008 15:09:51 / elva_69
Já einmitt það.. það er alveg ótrúlegt hvað maður fær sumt á heilan.. ég er núna búin aðv era bara heima að syngja úr vodaphone auglýsinguni þarna, jóla,jólajóla jóla, jólajóla.. og ekki er maður í miklu uppáhaldi hjá gamla karlinum þar sem hann HATAR þessa auglýsingu... En já margt er búið að ske síðan ég bloggaði seinast.. aðalega það að ég er að fara í Hústjórnunarskólann á Hallormsstað eftir áramót, ætla að taka mig fri frá ME.. þótt ég eigi nú eftir að sakna allra... ég hef þó hana Heiðrúnu beib  hún fékk mig til að sækja um með sér og við fengum báðar inn daginn eftir.. hann sagði við mig skólastjórinn að hann vildi fá Breiðdæling ! gott að vera Breiðdælingur sko!=) Svo erum við buin að gera laufabrauðið og svona! anskotans Arnór að beila á því fór að laga Subaruinn í staðinn alltaf bilað þetta helviti  hehe.. svo er ég bara búin að vera að taka til og spila póker! haha svo á Föstudaginn fór maður á siglingu upp í egs eftir eitt símtal og fór að ræða við mjög myndarlegan mann( ég ætla að fara að sækja um lögguskólan og vinna á sama stað og þessi;p ) og hún Arna mín útskrifaðist líka á föstudaginn! til hamingju með það gæsk  svo um miðnætti hittust alveg slatti af liði og við fórum að spila póker!! og mín nátturulega kann EKKI NETT í þessu.. haha samt endaði ég aftur í póker seinustunótt.. gekk aðeins betur en gat samt EKKI NETT  haha svo kíkti ég líka til Örnu í gærkveldi í smá útskriftarveislu sem var ´buin haha  svo skulum við ræða um SKÖTU!!!! minn ástkæri faðir ákvað að salta og kæsa skötuna sjálfur! hún var alltaf bara geymd inn í Snæhvammi síðan ákvað hann að koma með hana heim og vitiði hvað ÞAÐ ER EKKI LÍFT INNÍ HÚSINU.. þvílikt og annað eins! manni sviður í augun á lyktinni! en herbergið mitt er save! því er lokað all the time! þessi lykt er ekki velkomin þar! svo er stóra sæta ógeðið mitt aðkoma á morgun hann bróðir minn;* ég elska hann svo mikið! ég ætlaði að fara með og sækja hann en að vakna svona snemma á mánudagsmorgni er ekki mín deild ég féll á mætingu ís kólanum útaf ég þurfti að vakna fyrir 8 á mánudögum! hehe en jæja úff.. ég er farin að gera eitthvað að viti horfa aftur á ladda 6-tugur  adios  Elva Bára
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|